Góð stemning á bæjargrilli

14.08 2010 - Laugardagur

Bæjargrillið hefur náð að festa sig í sessi sem einn liður í menningar- og félagslífi vopnfirðinga. Í gærkvöldi komu heimamenn og gestir saman á skólalóðinni í hreint undursamlegu veðri.

„Þetta er eins og í bíómynd,“ sagði uppnumin Valgeir Skagfjörð við heimildarmann og útskýrði mál sitt nánar þar sem við stóðum. Svæðið gat allt eins verið á breiðtjaldi, milt sumarkvöldið jók áhrifin en umfram allt var það hin ljúfa stemning sem ríkti meðal gesta, sbr. maður er manns gaman, sem skóp myndina í höfði Valgeirs og brátt okkar beggja.

Hátt í 200 manns munu hafa tekið þátt í bæjargrillinu að þessu sinni og nutu allir stundarinnar í hvívetna. Strákarnir í Kleópötru skemmtu fólki með spilamennsku sinni auk þess sem þeir stýrðu fjöldasöng. Fegursta húsið var verðlaunað með glæsilegu gjafabréfi frá Bílum og vélum. Fullyrða má að sá hluti verðlauna sem mest um vert þótti að vinna sé kaffisopi með starfsmönnum B&V og hlýða á sögur þeirra! Verðlaunin, sem voru einkgar glæsileg, féllu Hreini Ármanssyni í skaut og var vel fagnað.

Hér má að einhverju leyti upplifa stemningu gærkvöldsins, eigi færri en 57 myndir hefur heimildarmaður sett við frétt þessa. Njótið vel.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir