Frábær fjölskylduskemmtun og afburða tónleikar

16.08 2010 - Mánudagur

Í huga þess er þetta skrifar, og málið er honum skylt, er sú hugmynd, að hleypa af stað listasmiðju(m) ungra vopnfirðinga, það sem er honum hvað kærast en hugmyndina má rekja allt aftur til ársins 2004. Á sl. árum var hugmyndin þróuð, allt að 6 leiðbeinendur voru fengnir til smiðjuvinnunnar en í ljósi árferðisins var einn látinn nægja í ár, Valgeir Skagfjörð. Hann kann á hinn bóginn svo mikið að einum var vel treystandi fyrir því sem hópur vann áður og sjá, niðurstaðan var frábær skemmtun þar sem hver einasti þátttakandi fékk sín notið.

Áður en kom að þætti hinna ungu opnaði menningarmálafulltrúi kvöldið með stuttu ávarpi, gaf síðan Valgeiri orðið en sá átti eftir að fara á kostum þar sem hann sagði sögur af þeim bræðrum og söng lög Múlans og texta Jónasar. Tók salurinn vel við sér enda sögurnar bráðskemmtilegar. Áður en að hápunkti kvöldsins kom, skemmtun krakkanna, sagði menningarmálafulltrúi sögur af starfininu, ýmist sagðar eftir Valgeiri eða af eigin reynslu.

Í lok dagskrár var fjöldasöngur allra er í salnum voru, Lífið er lotterí og Þá stundi Mundi voru kyrjuð svo undir tók í húsinu.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir