Park Project, magnað band

16.08 2010 - Mánudagur

Svo sem greinir frá hér á síðunni er djassband Pálma Gunnarssonar, Park Project, hreint afburða og sveik engan er á tónleikana mætti sl. laugardagskvöld.

Fyrri hluta tónleikanna fengu liðsmenn bandsins að leika sér án söngs, ýmist eigin lög eða lög meistara á borð við Miles Davis, s. s. So what - og þá með sínum hætti. Sætir undrun hversu vel skipað er í sveit, sú hugsun kom í hugann að með ílókindum sé að slík úrvalssveit skuli leika í 700 manna samfélagi.

Allt um það þá tóku tónleikarnir aðra stefnu er enn einn afburðaliðsmaðurinn bættist við, Hrund Ósk Árnadóttir er nefnilega engin meðalsöngkona. Með tilkomu hennar varð lagavalið með öðrum hætti en vel studd af gæðapiltunum söng Hrund Ósk hverja perluna af annarri og sveiflaðist á milli Diana Krall, Tina Turner og Billie Holiday - hvorki meira né minna. Lög eins og Fever, My Funny Valentine og Love Me or Leave Me runnu ljúflega í gegn en stúlkan sú nemur óperusöng í Berlín þessi misserin.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir