Léttmessa að hætti sr. Stefáns Más hefur orðið órjúfanlegur hluti af menningarstarfinu á Vopnafirði á sl. árum. Í gær, sunnudaginn 15. ágúst, var komið að KK að kyrja nokkur laga sinna auk nokkurra sálma með virkri þátttöku kirkjugesta.
Það hafa jafnan verið úrvalsfólk sem tekið hefur þátt í léttmessu Vopnafjarðarkirkju frá öndverðu. 2006 var það Valdi
Á sjó Halldórs, þá Guðrún Gunnars, Ellen Kristjáns og loks á sl. ári Kristjana Stefáns - og nú KK. Var stundin í kirkjunni hin notalegasta í alla staði enda leikur sr. Stefáni Má létt að stýra svona athöfn og með KK sér við hlið er einsýnt að niðurstaðan er á einn veg.