Einherji vann síðasta leik sinn á heimavelli á tímabilinu er liðið atti kappi við Samherja úr Eyjafirði, 7:3. Sú staðreynd segir okkur m. a. að hið skamma íslenska sumar er brátt á enda runnið.
Ekki blés byrlega fyrir okkar mönnum snemma leiks því eftir 25. mínútna leik var staðan nefnilega 0:3 fyrir gestina, sem léku vel meðan leikmenn Einherja virtust enn vera að átta sig á að leikurinn væri hafinn. Það átti eftir að breytast svo um munaði og við mark Símonar skömmu eftir 3ja mark gestanna var sem liðið næði loks að stilla saman strengi sína og hafði yfirburði lengstum eftir það. Áður en blásið var til leikhlés hafði Einherji jafnað og marki betur með mörkum áðurnefnds Símonar, Gunnlaugs Bjarnar, Tomislav og Bjarna.
Í síðari hálfleik fékk liðið nokkur úrvalsfæri áður en þrjú voru skoruð, Birgir, Daði og Davíð skoruðu sitt markið hver og allir kátir á Vopnafjarðarvelli. Hlýtt var í veðri allan leikinn en svona til að halda í hefðina, með einni undantekningu, skall á rigningarskúr allnokkur og kusu margir að njóta skjólsins við vallarhúsið það sem eftir lifði leiks. En sum sé, fín niðurstaða í skemmtilegum leik.