Yfirlýsing frá HB Granda

17.08 2010 - Þriðjudagur

Vopnfirðingum hefur ekki dulist að ekki hefur allt verið með felldu í hreinsunarbúnaði HB Granda sl. vikur. Afleiðingin er grútamengun í höfninni og við strönd og víkur í nágrenni þéttbýlisins. Hefur fyrirtækið sent í hvert hús sveitarfélagsins yfirlýsingu þar sem málið er nánar útskýrt. Fer yfirlýsingin í heild sinni hér á eftir.


Yfirlýsing og afsökunarbeiðni frá HB Granda hf
.

Í sumar hefur viljað brenna við að fita og grútur frá starfsemi félagsins á Vopnafirði hefur borist í fjörur staðarins. Grútarmengunin hefur valdið íbúum Vopnafjarðar óþægindum og biðst félagið velvirðingar á því.

Ástæða þess hafa verið bilanir í búnaði, dælum o.þ.h. og að frárennsli var mun meira en menn áttuðu sig á. Þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið gert til að hemja frárennslislögn virðist sem enn og aftur leiki endi hennar lausum hala.

Það hefur aldrei verið unnið annað eins magn af síld og makríl í uppsjávarfrystihúsinu og nú í sumar. Nú er t.d. búið að frysta rúm 7.500 tonn af afurðum á móti 1.200 tonnum í fyrra. Við þessa vinnslu er að falla til gífurlegt magn af fitu og hafa tæki okkar og úrræði greinilega ekki verið nægilega viðbúin því.

Við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að koma fráveitumálum okkar í fyrirmyndarlag. Nú er verið að auka afköst dælingar og fituhreinsunar í vinnslunni. Við erum að láta kafa með útrásarlögninni og munum koma henni í lag.

Við höfum í samvinnu við og undir forystu sveitarfélagsins hafið hreinsun í fjörunni.

Við höfum falið verkfræðistofunni EFLU að gera úttekt á fráveitumálum okkar, útrás og fituhreinsun og óskað eftir því að þeir hefji vinnu við verkið sem allra fyrst.

Við biðjum íbúa Vopnafjarðar enn og aftur afsökunar á þessu. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma fráveitumálum okkar í fyrirmyndarlag og hraða því ferli eins og hægt er.

 

F.h. HB Granda hf.,

Vilhjálmur Vilhjálmsson,

deildarstjóri uppsjávarsviðs. 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir