Vopnafjörður.is er okkar

18.08 2010 - Miðvikudagur

Jón Sigurðsson, eigandi www.vopnafjordur.is, benti heimildarmanni góðfúslega á að sveitarfélagið hafi tryggt sér veffang sitt í september 1999 og sett síðuna í loftið í þeim mánuði undir þeirri slóð. Sjálfur hafi hann ákveðið að opna eigin upplýsingasíðu snemma árs 2002 og þann 25. febrúar s. á. opnaði hann síðuna sína, www.vopnafjordur.is og hefur haldið henni úti síðan, vopnfirðingum og áhugafólki til ánægju.

Tímarnir breytast og möguleikarnir með. Nú býðst að nota íslenska stafi í veffangi og er veffangið www.vopnafjörður.is nú okkar. Þegar hugmyndin kom upp var ekki eftir nokkru að bíða, haft var samband við ISNIC og gengið frá kaupum á hina nýja - og eðlilega - veffangi sveitarfélagsins, vopnafjörður.is. Héðan af mun heimasíða sveitarfélagsins koma upp þegar vopnafjörður.is er slegið inn og engu breytir héðan af hvort inn er slegið www.vopnafjardarhreppur.is eða www.vopnafjörður.is,  leitandi mun ávallt lenda inná heimasíðu Vopnafjarðarhrepps - og sé hann velkominn þangað inn!





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir