Það fer ekki á milli mála að Vopnafjörður hefur notið blessunar þar eð vel hefur gengið að nálgast gull hafsins, síldina, á sumrinu. Svo sem áður hefur verið skrifað nýtur þjóðarbúið í heild þeirrar verðmætasköpunar sem HB Grandi skapar á Vopnafirði. Sýnilegust er hún hér heima.
Ferðir síldarinnar eru jafn óútreiknanlegar og íslenska veðráttan en nútíma tækni hefur hjálpað sérfræðingum er lesa í himinhvolfin og þeirra er kafa á djúpið. Sl. daga hefur á ýmsu gengið og af heimasíðu HB Granda h. f., www.hbgandi.is, má lesa:
Ingunn AK kom til Vopnafjarðar í nótt sem leið með tæplega 600 tonna afla sem fékkst djúpt austur af landinu. Uppistaða aflans er síld en dálítið er um makríl í aflanum. Að sögn Guðlaugs Jónssonar, skipstjóra á Ingunni, hefur veiðin verið mjög kaflaskipt eftir að skip HB Granda fóru til veiða eftir verslunarmannahelgina.
,,Lundey NS fór fyrst til veiða eftir hléið sem gert var á veiðum og vinnslu vikuna fyrir verslunarmannahelgina. Það var lítil veiði fyrsta sólarhringinn en síðan fannst ágætur blettur og veiðin var mjög góð dagana á eftir. Síðan dró úr veiðinni og hún hefur einkennst af því að leitað er að torfum í veiðanlegu magni og þegar þær finnast þá getur veiðin verið góð. Þetta er sem sagt sannkallað blettafiskirí,“ segir Guðlaugur en að hans sögn var Ingunn komin hátt í 200 mílur austur af Vopnafirði þegar veiði var hætt í fyrrakvöld.
,,Við vorum í þokkalegustu veiði en síðan gerði kaldafýlu og eftir það datt botninn úr veiðinni,“ segir Guðlaugur.
Síldin sem veiðst hefur að undanförnu er af ágætri millistærð eða um 230-240 grömm að þyngd. Nú er verið að landa úr Faxa RE á Vopnafirði en Lundey er á veiðum.