Útisigur Einherja á Fáskrúðsfirði

20.08 2010 - Föstudagur

Leikmenn Einherja luku keppnistímabilinu með góðum sigri á Leikni á Fáskrúðsfirði, 2:1, eftir að hafa leitt 1:0 í hálfleik. Var leikurinn fjörugur og brá fyrir skínandi leikköflum frá hendi beggja liða.

Leiktímabilið 2010 var sem andhverfa sl. árs þegar liðinu okkar gekk allt í haginn fyrri hluta tímabilsins en illa seinni hluta þess; nú var þessu öfugt farið, liðið fór hægt af stað en stígandinn góður þegar á sumarið leið. Liðið vann síðustu 3 leiki sína í deildinni með markatölunni 15:6 og lýkur keppni í 4ða sæti með 19 stig.

Leikurinn í gærkvöldi var fjörugur eins og leikir þessara liða iðulega eru, Einherji hafði harma að hefna eftir að hafa tapað heima fyrir Leikni fyrr í sumar, 1:4. Voru leikmenn vel einbeittir þegar frá öndverðu og létu heimamenn finna fyrir sér, sem sköpuðu fá færi fyrsta 1/2 tímann. Svo fór að eftir vænlega sókn skoraði Ivo einkar laglegt mark og þrátt fyrir mikla baráttu á báða bóga urðu mörkin ekki fleiri í fyrri hálfleik, 1:0 fyrir Einherja.

Síðari hálfleikur var ekki síður líflegur, leikmenn Einherja, Ivo, Bjarni og Birgir, komu sér allir í skotfæri en hittu markið ekki. Hinum megin átti sóknin eftir að þygjast verulega eftir því sem á leikinn leið, Tomislav sýndi gæði sín nokkrum sinnum milli stanganna og í teignum. Hinum megin áttu gestirnir spretti og í einum slíkum skoraði Birgir gott mark og kom Einherja í þægilega 2:0 stöðu. Með aukinni pressu tókst Leikni að laga stöðu sína eftir þunga sókn en nær komust heimamenn ekki og sigur Einherja á útivelli, 2:1, staðreynd og andinn í hópnum æ betri.

Kannski er sá kraftur sem liðið sýndi í síðustu 4 leikjum sínum - þ. á. m. jafntefli á Seyðisfirði í einum besta leik sumarsins - eitthvað sem hægt verður að byggja á næsta sumar. En sum sé, vel að verki staðið og megi drengirnir allir snúa til baka að ári - takk fyrir sumarið :-)

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir