Íslandsmótið í knattspyrnu er að baki hvað okkar pilta varðar. Birtum hér 5 liðsmyndir af strákunum að afloknum síðasta heimaleik, sem vannst 7:3 gegn Samherjum. Myndafjöldinn fyrst og fremst ánægjunnar vegna!
Niðurstaða mótsins er vel ásættanleg, einkum erum við vopnfirðingar glaðir með þau 10 stig sem liðið halaði inn í síðustu 4 leikjum deildarinnar. En hvernig sem leikið er, hvernig sem fer þá eru þetta okkar strákar og með þeim stöndum við - og bíðum spennt næsta sumars með tilheyrandi væntingum.