Í dag, laugardaginn 21. ágúst, var markaðsdagur á Bustarfelli. Mættu á staðinn með vörur sínar þeir sem stunda léttan heimilisiðnað.
Tjöld voru uppsett ofan gamla bæjarins og sunnan Hjáleigunnar. Var vel mætt af seljendum en minna fór fyrir kaupendum og má að einhverju leyti kenna um veðrinu en kalt var í veðri og gerði rigningardembu við og við. Þrátt fyrir að mæting væri undir væntingum var dagurinn ánægjulegur þeim er sáu sér fært að mæta og hlaðborðið í Hjáleigunni sveik ekki fremur en áður. Ekki skemmdi að Engihlíðarbýlið skyldi bjóða uppá kakó með rjóma. Hér má sjá myndir frá markaðsdeginum.