Óræk sönnun þess að sumarið er á enda er þegar skólabjallan hringir inn í annarbyrjun. Í dag kl. 10:00 var nemendum Vopnafjarðarskóla stefnt á sal ásamt aðstandendum og starfsmönnum skólans en fyrir alla nemendur bíður handan horns breyttir tímar, frjálsræðinu er lokið að sinni.
Aðalbjörn skólastjóri ávarpaði samkunduna, bauð nemendur og starfsmenn hjartanlega velkomna til starfa, einkum þann myndarlega hóp sem kemur inn í grunnskólann þetta haustið, samtals 16 krakkar. Var það sá hópur sem með mestri óþreyju beið þeirrar stundar að komast í kennslustofuna ásamt umsjónarkennara sínum. Í ávarpi skólastjóra kom fram að nú væri fríinu lokið og framundan tæki alvaran við - alvara í bland við leik vitandi að það er leikur að læra. Á hinn bóginn tæki reglan við af frelsinu og rétt að hafa í huga að nú þyrftu nemendur að huga að koma sér í rúmið, helst eigi síðar en kl. 22 - skóli væri í fyrramálið kl. 08:10. Eins mikið og frjálsræðið er öllum ánægjulegt er þörfin fyrir festu ungmennunum nauðsynleg, sem og aðstandendum. Liðlega 90 nemendur munu stunda nám við Vopnafjarðarskóla í vetur.
Eftir að skólinn var settur með lófataki héldu kennarar til stofa sinni ásamt nemendum sínum. Heimildarmaður mundaði vélina og taldi sig hafa myndað alla bekki skólans en við vinnslu fréttar uppgötvaðist að 6. bekkur gleymdist, að sjálfsögðu skyldi svo ekki fara og munu þeir nemendur njóta heimsóknar og myndatöku eigi síðar en þegar á morgun - og verða þá e. t. v. eina fréttaefni skólans í það sinnið, alltént aðalfréttaefnið! Beðist er velvirðingar á þessu. Meðfylgjandi eru myndir af fyrsta skóladegi, megi öllum er að skólanum koma ganga allt í haginn í vetur.