Skólaheimsókn í dag

24.08 2010 - Þriðjudagur

Heimildarmanni varð það á í gær að gleyma 6. bekk grunnskólans í heimsókn sinni er skólinn var settur. Fyrir slíkt hlýtur maður að þurfa að bæta og er gert hér með, fyrst með heimsókn í leikfimitíma 6. og 7. bekkjar, síðan heimsókn í skólastofuna.

Ekki einungis skyldu sjöttu bekkingar fá af sér mynd á heimasíðuna heldur þeir starfsmenn sem ekki voru með í gær en gegna mikilvægu hlutverki í starfi skólans. Annars er líkt og ekkert frí sé afstaðið þegar komið er í skólann í dag, fyrsta raunverulega skóladaginn, því allt er komið á fullt þegar á fyrsta degi.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir