Heimildarmaður fór um bæinn í dag og smellti af nokkrum myndum enda eitt og annað sem fyrir augu bar.
Það hefur verið haust í veðrinu undanfarna daga og er í fullu samræmi við dapurt sumarið þar sem við vorum sjaldnast sólarmegin í lífinu. Þrátt fyrir heldur dauflegt sumar veðurfarlega er engin deyfð yfir mannlífinu á Vopnafirði, athafnasemin er í fyrirrúmi svo sem meðfylgjandi myndasyrpa ber með sér.