Impra auglýsir eftir styrkumsóknum

30.08 2010 - Mánudagur

Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands auglýsir Átak til atvinnusköpunar. Átakið er á styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýksöpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsöpunarfyrirtækja. Impra á Nýsköpunarmiðstöð hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd ráðuneytisins.

Iðnaðarráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar sem veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.

Markmið verkefnisins:

·Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
·Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.

Í umsókn þarf að koma fram:
·Skýr lýsing á verkefninu í heild og ætluðum árangri þess
·Greining á nýnæmi verkefnisins
·Greinargóðar kostnaðar- og verkáætlanir
·Ýtarleg lýsing á þeim verkþáttum sem sótt er um styrk til, s. s. þróunarvinnu og markaðsstarfs.

Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og búnaði.

Allir sem fá styrk frá Átaki til atvinnusköpunar þurfa að skila áfangaskýrslu og lokaskýrslu til Impru. Styrkurinn er greiddur út eftir framvindu verkefnisins. Helmingur styrksins er greiddur samkvæmt framvísuðum reikningi frá styrkþega þegar áfangaskýrsla liggur fyrir og síðari helmingur á sama máta þegar lokaskýrslu hefur verið skilað til Impru. Í þessum skýrslum skulu m.a. vera upplýsingar um framvindu og árangur borið saman við þær áætlanir sem fylgdu umsókninni.

Rafræn umsóknareyðublöð eru á nmi.is. Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið tinna(hjá)nmi.is. Umsóknarfrestur er til 21. september.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir