Ef sumarið væri í líkingu við síðustu daga - með smá hliðarspori þokudags í gær - væri Vopnafjörður litla Mallorka, hvílík dýrð og dásemd! Dagar eins og þeir sem við njótum nú minna okkur á hversu yndislegt land okkar er; einstök náttúrufegurð, hreint loft, gott mannlíf og heimsins besta vatn til þess að kæla sig og/eða væta kverkarnar.
Einhverjum kann að þykja góðviðrið koma heldur seint en er ekki alltaf hægt að gleðjast yfir svona dögum þegar sólin skín og sunnanáttin leikur um líkamann? Svo er skólinn að njóta útiverunnar, í dag var gengið mishátt og mislangt - og á morgun verður gengið til berja. Er þá ekki um annað en að höndla KEA skyr og rjóma - njótið vel, veðurs og matar :-)