Heimildarmaður rölti um bæinn sl. föstudag og greindi frá yndislegu veðrinu, aftur var sami maður mættur með myndavélina á röltið í dag og skaut fáeinum skotum á það sem fyrir augu bar.
Það er ekki að undra þó við íslendingar þreytumst seint á að ræða veðrið - og við erum ekki einir um það því þær eru fleiri þjóðirnar sem búa við rysjótt veður. Einhver gáfulegur sagði ekkert veður vera á Íslandi, einungis sýnishorn af veðri. Hvort það er nú rétt eður ei vitum við sem er, búandi jafn norðanlega og við gerum, að við ýmsu er að búast og höfum fyrir margt löngu sætt okkur við þá staðreynd.
Þegar loks gefur til útiveru vegna yndisaukans sem í veðrinu felst kunna líklega fæstir jafn vel að njóta og við Frónbúar og það gerum við einmitt þessa dagana. Um leið og við vonum að tíðin standi sem lengst vitum við sem er að því kemur að hann snýst í norðrið, síðan í austur, vestur og suður - ekki endilega í þessari röð - og við munum halda áfram að spá í og tala um veðrið. Það er alveg á hreinu.