
Skemmtiferðaskipið M/V Plancius, eign hollenskrar útgerðar, Oceanwide Expeditions, mun koma til Vopnafjarðar að morgni þriðjudagsins 07. september n. k. og hefur viðkomu í 12 klst. Skv. áætlunum fyrirtækisins mun flestum farþegum vera stefnt í Mývatnssveit en þangað fara tvær rútur Tanna Travel undir leiðsögn Ágústu Þorkelsdóttur og Phillip Vogler.
Um er að ræða lítið skip í samhengi skemmtiferðaskipa, tæplega 90 metra langt og tekur 114 farþega og í áhöfn eru alls 37 í ýmsum störfum. Nokkuð vantar uppá að skipið sé fullt hingað komið, farþegar eru 87 og eru flestir frá Belgíu. Því er oft haldið fram að það fólk sem velur sér að fara um Norður-Íshafið og lönd þar eigi fjarri séu yfirleitt vel upplýst og hafi ósvikinn áhuga á umhverfinu og því sem fyrir augu ber um hin köldu svæði jarðar.
Á þessari stundu er ekki vitað hvernig formlegri móttöku verður háttað en starfsmenn sveitarfélagsins og ráðamenn þess gera ráð fyrir að koma að kynningarefni um borð í skipið. Þó skipið sé ekki stórt felst í heimsókn þess möguleikar sem rétt þykir að skoða vel en Oceanwide Expeditions á önnur skip og fer einnig á hlýrri svæði jarðar. Þykir fyrirtækið standa sig með mikilli prýði því árið 2009 var það verðlaunað með viðurkenningunni „World Travel Awards“, sem þýðir að það stóð sig besta allra er bjóða uppá heimsferðir það ár.
Skipið sem um ræðir var byggt árið 1976 til haffræðirannsókna fyrir konunglega hollenska flotann, Royal Dutch Navy, og var nefnt „Hr. Fröken Tydeman“. Allt til ársins 2004 sigldi skipið í þágu flotans uns Oceanwide Exp. keypti það. Var skipið endurbyggt hið innra til farþegaflutninga og sigldi af stað í þágu nýrra eigenda snemma árs 2009 undir hollenskum fána og uppfyllir öll þau skilyrði sem gerð eru til skipa er um ísilagðan hafflöt fara.
Sem fyrr segir tekur skipið 114 farþega í klefa, þar af 39 2ja manna og 10 21. fermetra klefa. Um borð er veitingasalur, setustofa með bar og stórum gluggum sem bjóða uppá útsýnismöguleika góða. Vel er rúmt um gesti á þilfarinu þar sem einstakt tækifæri gefst til að njóta útsýnis og dýralífs. Af myndum að sjá er skipið hið huggulegasta að sjá án þess að teljast til hinna svo nefndu lúxusskipa. Gestir eru að leita annars en afslöppunar, litið er svo á að þeir séu komnir um borð til að leita sér þekkingar á heimi sem þeir eru almennt ekki í tengslum við.
Í áhöfn eru samtals 37 manns þegar allt er. Þar af eru 17 sjómenn, 19 er teljast hótelstarfsmenn – þar af 6 matreiðslumenn en sem dæmi eru 2 starfsmenn í eldhúsi skólanna hér með sambærilegan fjölda! 11 annast þrif á skipinu, 7 annast leiðsögn og einn læknir er um borð.
Fyrir þá sem þekkingu hafa á vélum má geta þess að skipið er knúið með dísel-rafmagnskerfi til að draga úr hávaða og titringi. Vélar skipsins eru 3, 1230 hestöfl hver um sig er gefur skipinu afl til að renna skeiðið á 10-12 hnútum. Svo sem fyrr greinir er skipið styrkt sérstaklega til að sigla um norðurhöf þar sem hafíss má vænta flesta mánuði ársins.
Svo er bara að taka vel á móti ferðalöngunum um borð í Vessel Plancius.