Vel á móti M/V Plancius tekið

07.09 2010 - Þriðjudagur

Skemmtiferðaskipið Vessel Plancius kom til Vopnafjarðar fyrsta sinni í morgun og hvílík dýrð og dásemd sem skipinu mætti - veður svo yndislegt að sumir farþeganna neituðu hreinlega að trúa að þetta gæti verið Ísland!

Sannarlega var fyrrum hafrannsóknarskipið M/V Plancius til Íslands komið og ekki hvaða staðar á Íslandi sem er heldur Vopnafjarðar. Vitað er að Vopnafjörður nýtur þeirra augljósu kosta að hafa einkar fagurt bæjarstæði og þegar saman fer fagurt umhverfið, snyrtilegur bærinn og undursamlegt veður getur sú mynd sem ferðamanninum mætir ekki verið annað en hrífandi. Hvílík blessun getur maður sagt að svona skyldi fara þegar loks til Vopnafjarðar kemur skemmtiferðaskip.

Á þeim skamma tíma sem ferða- og menningarmálafulltrúi hafði á sér til undirbúnings var gengið skörulega til verks í samvinnu við sveitarstjóra, oddvita og annað gott fólk; sett var saman upplýsingamappa í allnokkrum eintökum er Magnús Már kom í hendur Annick Desmet, leiðangursstjóra, sem lofaði verk vopnfirðinga og mun koma áfram til ráðamanna fyrirtækisins. Var rætt um möguleika frekara samstarfs og hafandi komið á samskiptum er aldrei að vita nema til framtíðar komi hingað skip á vegum Oceanwide Exp. Upphafið lofar góðu.

Sveitarstjóri og ferðamálafulltrúi voru mættir í bítið ásamt leiðsögumönnunum, Ágústu okkar Þorkelsdóttur og Phillip Vogler, sem og Cathy Josephson - sem ferðam.flltr. vildi hafa til halds og trausts enda öllum hnútum kunn enskumælandi að auki. Vitað var frá upphafi að staldrið yrði stutt, tíminn þar af leiðandi vel nýttur en bróðurpartur farþega átti í vændum heimsókn í paradísina Mývatnssveit. Paradísin Vopnafjörður fær að bíða betri tíma þó áhafnameðlimir hafi nýtt sér stoppið og rölt um litla bæjarfélagið. Einhverjir munu til og með fengið akstur inní Bustarfell og haft mikla ánægju af.

Sum sé yndislegur dagur fyrir alla þá er veðurblíðu elska - það gera víst allir (?) - og þegar vitað er að um borð var sjálf drottningin af Belgíu fyllist maður ósjálfrátt stolti yfir að litla samfélagið við Vopnafjörð skyldi auðnast að bjóða uppá því sem næst skáldsögulega fegurð.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir