Aflasamdráttur en ekki verðmætis

09.09 2010 - Fimmtudagur

Þvert ofan í það sem maður hefði kannski haldið hefur mun minna borist á land á Vopnafirði á þessu sumri og var á sama tíma í fyrra, 27 þúsund tonn síldar og makríls á móti 41 þúsund. 

Mikil vinna hefur verið hjá HB Granda í allt sumar og ber að þakka innilega enda ekki sjálfgefið eins og ástandið er almennt í landinu - viðvarandi atvinnuleysi um 8%. Eins og fram kemur að ofan er um verulegan aflasamdrátt að ræða milli ára en það sem á hinn bóginn fegrar myndina á móti er að miklu meira magn fer nú til manneldisvinnslu en fyrr eða þreföldun miðað við afurðamagn.

Á heimasíðu HB Granda, www.hbgrandi.is, má lesa viðtal við Vilhjálm Vilhjálmsson, deildarstjóra uppsjávarsviðs fyrirtækisins, ofangreint kemur m. a. fram í viðtalinu og áfram segir:

Þann 1. september í fyrra hafi verið  búið að frysta 2.800 tonn af afurðum eða úr um 7% heildaraflans á þeim tíma en megninu var landað beint í fiskmjölsverksmiðjuna. Í ár er hins vegar búið að frysta um 9.000 tonn af afurðum eða um 33% heildaraaflans og frystar afurðir hafa verið unnar úr öllum lönduðum afla. Það þýðir að enginn heill farmur hefur farið til vinnslu á mjöli og lýsi hjá fiskmjölsverksmiðjunni á þessu ári.

,,Nýja fiskmjölsverksmiðjan á Vopnafirði hefur fyrir vikið fengið mun minna til að vinna úr en sú eldri fékk fyrra og í ár hefur verksmiðjan eingöngu fengið afskurð og síld og makríl sem flokkast hefur frá við flokkun í uppsjávarfrystihúsinu. Í fiskmjölsverksmiðjunni er nú búið að vinna úr um 18 þúsund tonnum af síldar- og makrílafskurði sem og fiski sem flokkast hefur frá vegna þess að hann hentaði ekki til frystingar. Í fyrra var magnið um 38 þúsund tonn og það var að langmestu leyti heill og óflokkaður fiskur“, segir Vilhjálmur.

Rekstur nýju fiskmjölsverksmiðjunnar hefur gengið vel og byrjunarörðugleikar hafa verið óverulegir. Að sögn Vilhjálms á Héðinn hf., sem tók að sér að reisa nýju verksmiðjuna með aðstoð undirverktaka, þó eftir að ljúka við nokkra verkþætti og í því sambandi ber helst að nefna rafvæðingu loftþurrkara og er vonast til að því verki ljúki nú í septembermánuði.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir