
Skilarétt verður í Teigi í dag, mánudaginn 13. september, kl. 16:30. Í huga margra er réttardagur sem þessi bundinn við helgardag en dagurinn er mánudagur og verður Kvenfélagið Lindin með veitingar í tjaldinu eftir sem áður. Er fólk hvatt til þess að taka rúntinn inn að rétt og þiggja veitingar í boði kvenfélagsins og fylgjast með atganginum í réttinni þegar féð er flokkað.
Mæðgur í nágrenni Ásbrandsstaða, saman eina stundina en aðskildar þá næstu.