Jarmið var mannamáli yfirsterkara þegar fé var smalað í Teigsrétt seinni partinn í gær. Ávallt er mikið fjör á stundum sem þessum og veðrið lék við menn og málleysingja.
Heimildarmaður var mættur með myndavélina í hendinni og festi viðburðinn á minniskubb - filma mun ekki lengur vera finna í myndavélum nema stakra kunnáttumanna. Hér að neðan eru allnokkrar myndir frá skilaréttinni, eins og vera ber höfðu allir ánægju af - alltént þeir sem tjáðu sig á sömu tungu og sá sem fréttina vann.