10 þúsund tonn fryst

15.09 2010 - Miðvikudagur

HB Grandi náði þeim merka áfanga í sl. viku að ná að komast yfir 10.000 tonn af frystum síldar- og makrílafurðum í frystihúsi sínu á Vopnafirði á yfirstandandi vertíð. Var þessu fagnað með verðugum hætti eða tertuveislu.

Menn eru eðlilega kampakátir með áunninn áfanga og fögnuðu með viðeigandi brauðtertuveislu en skv. nýjustu fregnum af veiðunum mega skipstjórnendur hafa mikið fyrir að ná síldinni þar eð hún er á mikilli ferð, stór sem hún er en ljónstygg. Þetta þýðir að sýna þarf kænsku við veiðarnar en ef það er eitthvað sem skipstjórnendur kunna er það einmitt að eiga við kenjóttan fiskinn.

Vinnslan mun hafa gengið með ágætum að undanförnu en að undanförnu hafa tvö skip haldið veiða í einu og veitt með eitt stórt flottroll, sem kallast í fræðunum tvíbura- eða tvílembingsveiðar. Aflinn hefur verið, líkt og áður, blandaður síld og makríll, sem ekki er til vandræða en málið verður ögn flóknara slægist kolmunni með. Magnús Þór, vinnslustjóri, segir á heimasíðu HB Granda:

,,Kolmunninn truflar okkur að því leyti að hann fer með síldinni inn á flokkarana og það er erfitt að flokka hann frá minni síldinni. Fyrir vikið hefur smærri síld, sem hentað hefði í frystingu, flokkast frá með kolmunnanum og farið til bræðslu,“ segir Magnús en hann upplýsir að ekki sé gott að fá kolmunnann inn á síldarflökunarvélarnar. Fréttum skv. mun hlutfall kolmunna hafa minnkað að undanförnu, sem er vel.

Skipin halda áfram að sigla inn til Vopnafjarðar og eru hér 3 við festar þegar þetta er skrifað.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir