Vert að skoða Orkusetur.is

16.09 2010 - Fimmtudagur

Fundað var nýverið með starfsmönnum Þróunarfélags Austurlands, sem komu m. a. með ábendingar varðandi heimasíðu Orkuseturs, www.orkusetur.is

Þegar farið er þar inn má sjá að síðan hefur að geyma margskonar fróðleik og er styrkur síðunnar ekki síst sá hversu aðgengileg hún er. Vakin er sérstök athygli á að iðnaðarráðuneytið í samvinnu við Orkustofnun/Orkusetur hefur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar með kostnaði við upphitun þess. Átaksverkefni 2010 er endurglerjun húsnæðis og á heimasíðunni að finna umsóknareyðublað og frekari upplýsingar hér að lútandi.

Á heimasíðu sveitarfélagsins hefur raforku-og hitunarkostnaður verið gerður að umtalsefni, samanburður gerður við t. a. m. höfuðborgarsvæðið auk annars kostnaðar samfara lífsbaráttunni. Orkusetur tekur á þessum málum sem öðrum og þar segir m. a. um raforkunotkun:

Heimili landsins nota raforku til að knýja hin ýmsu tæki en einnig til lýsingar innan- og utanhúss. Um 8% húsa nota raforku til hitunar og þar fer 70-90% raforkunnar í hitun. Reiknivélar er að finna yfir allt sem lítur að heimilinu og sjálfsagt að skoða.

Almenn heimilisnotkun á landinu, að undanskilinni rafhitun, var um 490 þúsund MWh eða um 4,4 MWh á meðalheimili á ári. Engin alvörurannsókn hefur farið fram um hvernig raforka er notuð hér á landi en rannsóknir erlendis sýna að orkunotkun á meðalheimili megi skipta niður á eftirfarandi hátt: Þvottur og þurrkun 20%, geymsla matvæla 20%, lýsing 20%, önnur raftæki 17%, matargerð 16% og uppvask 7%.

Ókeypis ráðleggingar til að bæta orkunýtni án aukakostnaðar eru síðan settar fram og geta dregið verulega úr orkukostnaði heimila:

  • Lækka innihita niður í 20°C
  • Slökkva alveg á raftækjum, ekki skilja þau eftir í biðstöðu
  • Hafa glugga lokaða nema við gagngera loftun
  • Ganga eða hjóla styttri vegalengdir
  • Fylla ávallt þvottavél og uppþvottavél
  • Hafa lok á pottum og pönnum og þekja alla helluna
  • Setja gluggatjöld fyrir glugga að næturlagi
  • Vistakstur með mjúkum akstri og réttum loftþrýsting í dekkjum
  • Ekki byrgja ofna með húsgögnum eða gluggatjöldum
  • Fara í sturtu frekar en bað

Svo sem áður greinir er húshitun meginhluti raforkunotkunar. Langflestir landsmenn njóta hitaveitu eða um 90%, þar af tilheyra um rúmlega 86% hitaveitum er heyra undir reglugerð, um 1% öðrum jarðvarmaveitum og rúm 3% hitaveitum sem byggja á olíu- eða rafmagnshitun. Þau 9% landsmanna sem eftir eru nota rafmagnshitun og njóta niðurgreiðslu – greiða þó hæsta verð allra. Orkunotkun til húshitunar er háð stærð, gerð, staðsetningu og aldri húsnæðis. Forsendur Orkuspárnefndar gera ráð fyrir að meðalorkuþörf til húshitunar á íbúðarhúsnæði sé í kringum 60 kWh/m3.

Orkuveita Reykjavíkur hefur notað ákveðna stuðla til að meta eðlilega heitavatnsnotkun. Þar er vatnsnotkun á ári deilt með rúmmáli húsnæðis.

Síða Orkuseturs hefur miklu meira að geyma en þessar upplýsingar, s. s. reiknivél þar sem gera má samanburð á bifreiðum, því sem næst öllum sem hér er að finna. Það er ekki lítið atriði að kanna hvað í bílinn fer þegar þess er gætt að rekstur hans kostar milli 250-300 þúsund krónur á ári.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir