Myrkur Afríku svo svart

19.09 2010 - Sunnudagur

Í morgun kl. 11:00 bauð Vopnafjarðarkirkja til fjölskylduguðsþjónustu með virkri þátttöku vopnfirskra ungmenna. Í upphafi messugjörðar bauð sr. Stefán Már Stephen Yates, nýjan kórstjóra og organista, sértaklega velkominn til starfa.

Fjölskyldumessa sem þessi hefur yfir sér léttleika í anda léttmessu og er einkar notaleg stund að njóta. Sr. Stefán Már hélt utan um athöfnina en naut stuðnings ungmenna okkar og kollega síns, sr. Jakobs Ágústar Hjálmarssonar, sem flutti hugleiðingu. Hefur sr. Jakob um nokkurt skeið starfað í Afríku en var áður áður m. a. prestur á Seyðis- og Ísafirði auk þess að þjóna sem Dómkirkjuprestur.

Sagði Jakob m. a. í predikun sinni að tvær ástæður væri fyrir að Afríka kallaðist svarta heimsálfan er annars vegar litarhaft velflestra íbúa en ekki síður að þar er myrkrið svo svart. Okkur hættir til að óttast myrkrið, við íslendingar búum við mikið myrkur og leitumst því við að lýsa upp skammdegið og þá einkum í tengslum við jólin. Í Afríku leynast sannarlega víða hættur, þefmæn rándýr læðast um í myrkrinu, höggormar og fólk, sem veit ekki betur, og reynir að skaða menn og málleysingja.

Guð skapaði jörðina eins og hún er, með öllum þeim hættum, sjúkdómum og óæru sem okkur er gert að takast á við. Einn og sér getur maður á tíðum ansi fátt en með samstöðunni hefur okkur tekist að vinna mikilvæga sigra. Það er einmitt sá þáttur sem sr. Jakob tiltók sérstaklega, að fólk sýndi samstöðu og er það ekki einmitt svo farið í litla samfélaginu okkar þegar öllu er á botninn hvolft? Einmana maður getur átt heilan banka en vinasnauður á hann í raun ekkert því hann hefur engan til að deila með mér sigrum - og ósigrum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir