Vopnfirðingur meðal verðlaunahafa NKG

20.09 2010 - Mánudagur

Lokahóf  Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda fór fram um helgina hjá aðal bakhjarli NKG, Marel í Garðabæ. Innsendar hugmyndir í ár voru 1600 talsins. NKG er nú haldin í 19. sinn.

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG) er keppni í nýsköpun fyrir alla aldurshópa grunnskólans. Keppnin fer fram allan ársins hring. Tilgangur keppninnar er að virkja sköpunarkraft barna  og unglinga í landinu. Lokahóf er á haustin að undangenginni vinnusmiðju þar sem hugmyndir sem komast í úrslit eru útfærðar frekar með aðstoð leiðbeinenda. Tekið er á móti hugmyndum til 30. maí ár hvert. 

Keppnisflokkarnir voru sjö talsins í ár; Almennur flokkur, atvinnuvegir, hugbúnaður, hönnun, slysavarnir, leikföng og orka og umhverfi. Verðlaunahafar eru 25 talsins með 20 hugmyndir. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson verndari keppninnar, afhenti verðlaun og flutti hátíðarávarp. Mennta- og menningarmálaráðherra Katrín Jakobsdóttir, afhenti viðurkenningarskjöl til þátttakenda og grunnskóla. Sem fyrr greinir átti Vopnafjörður fulltrúa meðal þeirra sem verðlaunaðir voru, Victoria R. Z. Moreno, sem hlaut 3ja sæti og stóð sig frábærlega vel.

Farandbikarinn hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ. Þrír skólar hrepptu viðurkenningar fyrir hlutfallslega flestar hugmyndir í NKG og fyrir störf sín á sviði nýsköpunarmenntar.

Það voru:

Hofsstaðaskóli hlaut Gullverðlaun og farandbikar
Brúarásskóli hlaut Silfurverðlaun
Grunnskólinn að Hólum hlaut Bronsverðlaun

Guðrúnarbikarinn var afhentur í fyrsta sinn, til heiðurs Guðrúnar Þórsdóttur heitinnar. Guðrún var ein af upphafsaðilum Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda og hennar störf í þágu nýsköpunarmenntar verða ómetanleg um alla framtíð. Dóttir Guðrúnar, Anna Hulda Ólafsdóttir afhenti ungri stúlku, Sigríði Tinnu Sveinbjörnsdóttur bikarinn fyrir framúrskarandi störf í vinnusmiðju NKG 2010.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir