Í næstu viku, frá og með mánudeginum 27. september, munu ungmenni í kirkjustarfi Vopnafjarðarkirkju standa fyrir vinaviku á Vopnafirði.
Eftir því sem heimildarmaður kemst næst ríkir enn nokkur leynd yfir dagskráinni en eins og nafnið bendir til mega vopnfirðingar vænta góðra hluta í næstu viku og sjálfsagt að láta sig hlakka til. Og takist vel til, sem full ástæða er til að vænta, mun þessi vika vera komin til að vera en um sl. helgi fór fram einkar notaleg messa í kirkjunni okkar með þátttöku fjölmargra barna og ungmenna.
