Heimildarmaður síðunnar kíkti í heimsókn í sláturhúsið í vikunni. Móttökur voru hinar bestu, góðfúslega fylgdu Skúli og Álfheiður honum um annasaman vinnustaðinn og lýstu því sem fyrir augu bar.
Fyrir þann sem aldrei hefur komið nálægt slátrun með nokkrum hætti - og hefur yfir höfuð tekið aldrei veitt neitt - er sláturhús fyrir hlutaðeigandi algjörlega framandi veröld. Hefði verið hægt að segja hvað sem er við trúgjarnan gestinn en jafn kurteisar manneskjur og Skúli og Álfheiður gera ekki slíkt!
Aðspurður sagði Skúli að hátt í 45 manns vinna hjá sláturfélaginu á sláturtíð og sagði mun auðveldara að fólk til vinnu en áður - og margir eru að koma aftur og aftur. Jafnvel erlendis frá, allt saman er það gott fólk sem er tilbúið í slaginn. Slátrað er 800 skrokkum á dag en héðan fara um 15 tonn eða ca. 1200 frystir skrokkar til Kjarnafæðis á Svalbarðsströnd í Eyjafirði vikulega en fyrirtækið kaupir allt af þeim nema hvað saltaðar gærurnar fara til Kína.
Hausar eru verkaðir hér á Vopnafirði, samtals um 25 tonn, en innmatur fer norður einnig allt eftir því sem þeir þurfa. Til og með 2 tonn af blóði fara norður í blóðmörinn. Samtals er 28 þúsund fjár slátrað þetta haustið, gæti sláturhúsið tekið við u. þ. b. 2000 til viðbótar án breytinga.
Að aflokinni sláturtíð eru starfsmenn einungis 4 en með lagni og góðu skipulagi hefur tekist að búa svo um að þessir fjórir starfsmenn hafa lífsviðurværi sitt af vinnu sinni í sláturhúsinu. Þeir eru Skúli, Þórður, Álfheiður og Sigurður. Þá er unnið við að úrbeina fullorðið fé, nautaslátrun, viðhaldi fasteigna auk þess sem starfsmenn taka sér ágætis frí á milli verkþátta. Fjörið er auðvitað mest um sláturíð en vinnan er mikil og krefjandi, ekki síst fyrir föstu starfsmennina enda skiptir öllu að ferlið gangi vel fyrir sig.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af vettvangi, njótið vel.