Eins og greint var frá í vikunni síðustu stendur æskulýðsfélag Hofsprestakalls fyrir s. k. vinaviku dagana 27. september til og með 03. október n. k. Er vakin athygli á enda eiga íbúar sveitarfélagsins að taka þátt í eins og kostur er, þetta er jú okkar krakkar sem í hlut eiga. Hér fer tilkynning frá sr. Stefáni Má hér að lútandi.
Í fyrsta skiptið verður haldin Vinavika á Vopnafirði, dagana 27. september – 3. október. Tilgangurinn er að minna á hin sönnu verðmæti lífsins, vináttuna og kærleikann. Hugmyndin að vinavikunni varð til í æskulýðsfélagi Hofsprestakalls og mun félagið standa fyrir ýmsum viðburðum, t. d. munu krakkarnir bjóða fyrirtækjum og stofnunum upp á ókeypis skreytingar og Vopnfirðingar eiga von á ýmsum óvæntum og skemmtilegum uppákomum.
Einnig verður Vinaskrúðganga fimmtudaginn 30. september kl. 14:30. Lagt verður af stað frá Vopnafjarðarskóla og gengið að Kaupvangi. Í skrúðgönguna eru allir velkomnir og Kærleiksmaraþon verður sunnudaginn 3. október milli kl. 12:00-17:00. Boðið verður upp á ókeypis vöfflukaffi, bílaþvott, andlitsmálun fyrir börnin í safnaðarheimilinu o. fl. Milli kl. 12:00-14:30 verður gengið í hús og boðin fram aðstoð við heimilisstörfin.
Dagskrá Vinavikunnar lýkur með Taizemessu í Vopnafjarðarkirkju sunnudaginn 3. október kl. 17:00 og á eftir verður boðið upp á kærleiksmáltíð.
Unglingarnir í æskulýðsfélaginu eru mjög áhugasöm um vinavikuna enda þeirra hugmynd og framkvæmd af þeim. Mikilvægt er að sýni þessu framtaki áhuga og athygli þannig að boðskapur vináttunnar og kærleikans nái sem víðast.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Hofsprestakalls: www.kirkjan.is/hofsprestakall/2010/09/24/vinavika-2010-vopnafirði/#more-378 og hjá undirrituðum.
Dagskrá vikunnar er styrkt af HB Granda hf. og Bílum og vélum ehf.
„En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt en þeirra er kærleikurinn mestur.“ (Kor 13.13)
Bestu kveðjur,
Stefán Már Gunnlaugsson
sóknarprestur Hofsprestakalls