Dagana 24. og 25. september sl. hélt SSA, Samband sveitarfélaga á Austurlandi, aðalfund sinn á - Breiðdalsvík að þessu sinni. Að venju lágu fyrir fundarfólki mýmörg mál sem taka þurfti fyrir en aðalfundurinn er vettvangur fyrir landshlutasamtökin að koma frá sér sameiginlegum ályktunum.
Hér gefur að finna ályktinar aðalfundarins um byggða- og atvinnumál.
Ályktanir á SSA þingi 2010 - byggða- og atvinnumál.pdf
Lengi vel voru Hellisheiðargöng inni í málaflokknum um samgöngumál en ekki lengur, ekki sérstaklega tilgreind. Að afloknu efnahagshamförum fyrir brátt réttum 2 árum þarf að endurskoða allar áætlanir og óskir um leið. Í áherslum um vegasamgöngur segir:
Aðalfundur SSA ... leggur áherslu á að jarðgöng og aðrar mikilvægar stærri vegaframkvæmdir á svæðinu, sem um er getið í framtíðarsýn um landssamgöngur á Austurlandi, fari inn á fjögurra og tólf ára samgönguáætlun. Áhersla er lögð á að Norðfjarðargöng komi fyrst í röðinni af umræddum framkvæmdum enda er þar um að ræða mikilvæga framkvæmd út frá öyrggissjónarmiðum (tryggt aðgengi að fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupsstað) auk þess að vera liður í því að styrkja Austurland sem heildstætt atvinnusvæði ...
Svo má alltaf velta fyrir sér staðsetningu sjúkrahússins en það er annað mál.
Réttilega er bent á að austfirðingar sitji hreint ekki við sama borð og t. a. m. þéttbýlisbúar syðra hvað varðar þjónustu 3G-kerfisins þar sem væntingar eru langt í frá uppfylltar. Verðlagning á gagnaflutningum og háhraðatengingum sé hin sama óháð búsetu. Hafnarframkvæmdir verði eftir sem áður styrktar af ríkisvaldinu.
Mennta- og menningarmál leika stórt hlutverk í nútíma samfélagi. Því leggur aðalfundurinn áherslu á þróun Þekkingarnets Austurlands, þ. m. t. námsverin/þekkingarsetrin á Vopna- og Reyðarfirði. Ályktað er um háskólanám á Austurlandi, um miðstöð sjávarútvegsrannsókna og uppbyggingu framhaldsskóla.
Menningarsamningar við mennta-/menningar- og iðnarðarráðuneyti verði endurnýjaðir enda vita allir þeir sem á annað borð sýna þeim málum áhuga hver sá ávinningur er að hafa fengið þann samning í gegn á sínum tíma. Hann hefur enda orðið fyrirmynd annarra á Íslandi, málið er afar brýnt og rétt að halda vöku sinni nú þegar skorið er niður sem aldrei fyrr. Menningarmiðstöðvar njóti eftir sem áður fjármagns til rekstrar en þar er unnið mikilvægt starf og vex ár frá ári. Lagt er til að yfirfærsla sérsviða menningarmála er voru á Hornafirði, bókmennta og handsverks, til Vopnafjarðar og Fljótsdalshéraðs verði hafin og lokið sem fyrst.
