„Austfirsk eining“

29.09 2010 - Miðvikudagur

Tillaga samstarfsnefndar á aðalfundi SSA 2010 var samþykkt á fundinum og þar segir, að sveitarfélög á starfssvæði sambandsins endurskipi í starfshóp SSA og sveitarstjórnarráðuneytisins. Hópurinn skuli bera vinnuheitið „Austfirsk eining“. Aðalfundurinn samþykkir í þessu samhengi:

 

·         Starfshópurinn skuli vinna að því að greina möguleika á frekara samstarfi allra sveitarfélaga á svæðinu um einstök verkefni.

 

·         Starfshópurinn skoði möguleika á verkefnaflutningi frá ríki til sveitarfélaga með það í huga að sveitarfélögin á Austurlandi leysi þau í sameiningu.

 

·         Starfshópurinn haldi áfram vinnu við að greina kosti og galla sameiningar Austurlands í eitt sveitarfélag. Vinnan byggi á tímamótasamþykkt á 43. aðalfundi SSA og styðst einnig við samþykkt stjórnar SSA frá 02. nóvember 2009 um áherslur sem þar koma fram.

 

Til samanburðar var samþykkt á aðalfundi SSA í fyrrahaust, svo sem vísað er til, að fela stjórn SSA að skipa starfshóp sem hefur það meginverkefni að fjalla um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna á starfssvæði SSA í eitt sveitarfélag.

Hópnum var falið eftirfarandi:

1. Að gera tillögur að stjórnkerfi nýs sameinaðs sveitarfélags.

2. Að leita eftir samvinnu við ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnarmála um mögulega sameiningu.

3. Að kanna vilja ríkisvaldsins til sameiginlegrar stefnumörkunar um opinberar framkvæmdir og verkaskiptingu slíks sveitarfélags og ríkisvaldsins.

 

4. Að fjalla um þau áhrif sem tilkoma hins nýja sveitarfélags hefði í för með sér fyrir austfirskt samfélag með sérstakri áherslu á þau tækifæri sem sköpuðust.

 

 

Skref hefur verið stígið tilbaka, fara á sér ögn hægar – með aukna raunhæfni að leiðarljósi má hugsa sér.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir