Vinavikan heldur áfram með virkri þátttöku ungmenna og víst finnum við hin fyrir þessu einkar jákvæða frumkvæði æskulýðsstarfs kirkjunnar. Í dag fór vinaganga frá grunnskólanum með breiðri þátttöku vopnfirðinga.
Vinavikan verður að teljast sérlega jákvætt framtak og mitt í allri þeirri neikvæðni sem gengur yfir fólk þessi dægrin er frétt af vinaþelinu eins og ljós í myrkri. Til þess er tekið að ríkisfjölmiðillinn, RUV, hefur greint frá þessu bæði á Rás 1 og 2, Morgunblaðið á vefsíðu sinni og án efa víðar hefur af þessu frést. Alltof mikill hluti fréttatímanna fer í neikvæðar fréttir, sem til lengdar hefur ill áhrif á sálarlíf tilheyrenda.
Gangan var í alla staði hin ánægjulegasta þar sem sungið var stund og stund en umfram allt nutu göngumenn návistar við vini á vinaviku og hvað er betra en að vera meðal vina?
Á morgun verður svo boðið uppá frítt faðmlag fyrir fólk á förnum vegi - er ekki sjálfsagt og eðlilegt að þiggja það?
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af vinagöngu dagsins.