Vinavikan hefur slegið í gegn! Allir eru sammála um að þessi frábæra hugmynd komi á besta mögulega tíma þegar íslensk þjóð er illa haldin af sundurþykkju og depurð búandi við efnahagslegar þrengingar.
Þær afar jákvæðu fregnir sem héðan berast hafa vakið athygli víðs vegar á Íslandi og víst hefur Vinavikan virkað vel. Sá sem þetta ritar hefur frá jákvæðri reynslu að greina frá en hafandi fengið þær fregnir að Íslandspóstur dreifir ekki fjölpósti á föstudegi var honum vandi á höndum - eftir öll þessi ár uppgötvaði maðurinn að ekki er dreift á þessum vikudegi! Leitað var til vina í grunnskólanum og það var ekki vandamál, þvert á móti var bóninni tekið með brosi á vör - og faðmlagi síðar um daginn!
Dreifibréf með tónleikum Harðar Torfasonar fór í hvert hús og framtakið hér með þakkað innilega um leið og minnt er á að tónleikarnir eru í kvöld kl. 20:30 - sjáumst.