Magnaðir tónleikar Harðar

03.10 2010 - Sunnudagur

Hann sveik ekki þann góða hóp vopnfirðinga er mætti í Miklagarð í gærkvöldi, Hörður Torfason. Mæting var með ágætum en mæting á menningarviðburði á Vopnafirði hefur verið heldur undir væntingum undanfarið.

Tónleikana byggði Hörður upp með tvennslags hætti; fyrir hlé flutti meistarinn lög af fyrstu hljómplötu sinni, sem hét einfaldlega Hörður Torfason, eftir hlé lék hann óskalög utan úr sal. Greindi Hörður frá tilurð laganna á plötu sinni, sem öll eru hans, og texta - og þær aðstæður sem unnið var við og myndu þykja fornfáleg nú um stundir, 40 árum síðar.

Byrjað var á fyrsta laginu, Þú ert sjálfur Guðjón við snilldar texta Þórarins Eldjárn, og haldið áfram uns komið var að 12ta laginu, Gamalt sæti við ljóð Steins Steinarr. Eftir hlé komu óskalögin eitt af öðru og sama hvort um ný eða gömul lög var að ræða fór Hörður óaðfinnanlega með og þrátt fyrir að vera kominn af léttasta skeiði er röddin enn ung og sterk - og hann sjálfur enn sem fertugur væri.

Svo skemmtilega vill til að hönnuður umslags hinnar stórmerku plötu - sem talin er að hafi selst í 15-16 þúsund eintökum - er Björn G. Björnsson, hönnuður Múlastofu.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir