Vinakveðja við Vinavikulok

03.10 2010 - Sunnudagur

Í dag var lokadagur Vinavikunnar á Vopnafirði en eins og greint hefur verið frá hér hefur framtakið vakið mikla athygli víða um land. Í upphafi Taizemessunnar í dag las sr. Stefán Már kveðju biskups, herra Karls Sigurbjörnssonar, og fer hún öll hér á eftir ásamt kveðju sr. Stefáns Más.

Er þökkum komið á framfæri til allra þeirra er að Vinaviku komu, sérdeilis gott framtak í alla staði.

Hér að neðan fara kveðjur sr. Stefáns Más og biskups, herra Karls Sigurbjörnssonar, auk nokkurra mynda er teknar voru í dag.

VINAKVEÐJA FRÁ VOPNAFIRÐI – við lok vinaviku

 

Vinavika var á Vopnafirði á vegum æskulýðsfélags Hofsprestakalls og lauk síðastliðinn sunnudag með kærleiksmaraþoni æskulýðsfélagsin Hofsprestakalls og guðsþjónustu í Vopnafjarðarkirkju þar sem unglingarnir tóku virkan þátt.

 

Unglingarnir stóðu fyrir ýmsum viðburðum sem minntu á gildi vináttu og kærleika. Fyrirtæki voru skreytt, íbúar fengum óvænt skilaboð að morgni dags, farið var í fjölmenna skrúðgöngu og á föstudaginn aðstoðuðu unglingarnir fólk við verslunarinnkaup, gáfu barmmerki sem á stóð „Ég er vinur“ og föðmuðu fólk. Það er óhætt að segja að margir hafi hreinlega bráðnað í faðmi krakkanna.

 

Vikunni lauk með árlegu kærleiksmaraþoni sem fólst í því að ganga í hús og bjóða fram aðstoð sína við heimilisverkin. Þá var opið hús í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju, þar sem boðið var upp á vöfflur, kaffi og djús – allt ókeypis. Fólki gafst kostur að láta þvo bílana sína og börnin fengu andlitsmálun. Í guðsþjónustunni tóku unglingarnir virkan þátt og buðu svo öllum upp á spaghettí og brauð á eftir. Við upphaf guðsþjónustuna var lesin kveðja frá biskupi Íslands, sr. Karli Sigurbjörnssyni, þar sem hann þakkaði unglingum fyrir vinavikuna og framlag þeirra og að minna okkur á hin sönnu verðmæti lífsins vináttuna og kærleikann, umhyggjuna og gleðina á tímum þegar mikil reiði, sorg og óvild er í samfélagi okkar hér á Íslandi (sbr. neðangreint). Á annað hundrað manns komu í kirkjuna og nutu vináttu með unglingunum og góðgjörða þeirra.

 

Með framtaki sínu hafa unglingarnir sýnt með áþreifanlegum hætti gildi vináttunnar og kærleikans og á Vopnafirði höfum við fundið orð Páls postula rætast:  „Því nú varir trú, von og kærleikur, en þeirra er kærleikurinn mestur.“ (Kor. 13:13)

 

---

 

Kveðja frá biskupi Íslands sr. Karli Sigurbjörnssyni

 

Kæru vinir í Vopnafirði. Þakka ykkur fyrir vinavikuna! Frásagnirnar af vinavikunni sem ég hef heyrt og lesið í  fjölmiðlum, hafa hrifið mig og svo marga um land allt og borið okkur öllum svo hlýju, birtu og von. Ég vil þakka þetta frábæra framtak æskulýðsfélags kirkjunnar og sóknarprestsins og þeim mörgu sem hafa tekið undir með þeim og stutt þau með ráðum og dáð til að bera boðskapinn og áhrifin áfram út í samfélagið.  Það er ómetanlega dýrmætt að vera minntur á hin sönnu verðmæti lífsins vináttuna og kærleikann, umhyggjuna og gleðina. Það hafið þið gert með framtaki ykkar.

Það er mikil sorg, reiði og óvild í samfélagi okkar hér á Íslandi. Vinátta er vegur til friðar og sáttar, vegna þess að vinátta byggir á trausti. Á tímum sífellt yfirborðslegri samskipta er vinátta ekki auðfundin. En sönn vinátta er lækning við kaldhæðni sem er andstæða trúar og vonar. Mál vináttu og kærleika skilja allir, það rýfur hindranir ótta, tortryggni og fyrirvara. Látum það mál og áhrif berast á milli okkar og til allra sem á vegi okkar verða.

Guð blessi ykkur öll, kæru vinir.

 

Karl Sigurbjörnsson

 

 

kær kveðja,

 

Stefán Már Gunnlaugsson

sóknarprestur Hofsprestakalls





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir