Verkefni í nærmynd - Heiðarbýlaverkefni

05.10 2010 - Þriðjudagur

Vaxtarsamningur Austurlands styrkti á síðasta ári verkefnið Heiðarbýlaverkefni.  Meginmarkmið verkefnisins eru tvö, annarsvegar að skera sjálfsmynd einstakra byggðarlaga og hinsvegar að byggja upp menningartengda ferðamennsku.

Ætlunin er að vinna að varðveislu menningararfleiðar, í formi texta og mynda, með notkun nýjustu tækni.  Menningar- og fræðasetrið Kaupvangur á Vopnafirði hefur verið að vinna að því að safna heimildum um heiðarbýli og vesturferðir á svæðinu auk þess að fara yfir söfn gamalla mynda með leiðsögn fræðimanna.  Til þess að koma þessu samstarfi í markvissan farveg er áformað að flétta þessar tvær fræðakvíslar saman í námskeið, þar sem markmiðið verður að veita hinum fjölþætta fróðleik í hagnýta farvegi.  Þetta yrði um leið tilraunaverkefni, og nýta mætti reynsluna af því um allt land.

Verkefnastjóri:  Þórunn Egilsdóttir

Af vef stoðstofnana á Austurlandi, www.austur.is





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir