Ekkert lát hefur verið á veðurblíðunni á Íslandi sl. vikur og þá einkum Norðan- og Austanlands. Heimildarmaður var á vappinu með myndavélina í dag og tók nokkrar myndir í þéttbýlinu og nágrenni þess.
Veðurstofan er þó tekin að vara við breytingum í veðrahvolfinu og samkvæmt henni snýst til norðanáttar eftir helgina. Enn er tími til að njóta sumaraukans en auðvitað hlaut fyrr eða síðar að koma að þeirri stundu að veturinn minnti á sig. Má draga þá ályktun að hver einasti íbúi landsins hafi notið þeirrar góðu tíðar sem ríkt hefur vikum saman vitandi að héðan af hefur veturinn þegar verið styttur nokkuð í annan endann.