Samkvæmt samþykkt um hunda- og kattahald í Vopnafirði skulu hundar og kettir færðir til bandormahreinsunar haust hvert. Komið er að þeim degi, á morgun, miðvikudaginn 20. október, skulu hunda- og kattaeigendur koma með dýr sín áhaldahús/þjónustumiðstöð sveitarfélagsins.
Mæta skal með hunda milli kl. 08:00-10:00, ketti milli kl. 10:00-12:00. Leyfisgjald skal innt af hendi, krónur 10.000,- fyrir hunda og 6.000,- fyrir ketti. Greiða skal með peningum þar eð ekki er tekið við greiðslukortum.
Vakin er athygli á því að vanræki eigendur dýra þessa skyldu sína er það skýlaust brot á samþykktum um hunda- og kattahald í Vopnafjarðarhreppi. Eigendum óskráðra dýra er bent á að skrá dýr sín strax. 
Þjónustumiðstöð