Og haustið kom

19.10 2010 - Þriðjudagur

Eftir yndislegan sumarauka í einn og hálfan mánuð kom haustið loksins með snjó og frosti í dag. Ekkert er við því að gera fremur en áður þegar veðrið er annars vegar og búandi á mörkum hins byggilega heims, eins og gjarnan er sagt um Ísland, getum við einungis glaðst yfir veðurblíðu sl. vikna og tökum auðmjúk á móti vetrinum.

Heimildarmaður stóðst ekki mátið og rölti um hluta þorpsins með myndavélina og tók nokkrar myndir sem hér fylgja.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir