Hús tekur jákvæðum breytingum

21.10 2010 - Fimmtudagur

Ingólfur Bragi málarameistari festi kaup á gömlu lögreglustöðinni, Hamrahlíð 26, á liðnum vetri. Húsið var vægt til orða tekið farið að láta á sjá, stakk í stúf við snyrtileg húsið allt í kring.

Þegar fyrir lá að Ingólfur fengi húsið keypt var vitað að snyrtipinninn myndi aldrei láta húsið standa lengi í þeirri mynd sem það var er hann handsalaði kaupin. Á útmánuðum ársins 2010 puðaði Ingólfur ásamt spúsu sinni, Helgu Jakobsdóttur, allar frísstundir en því miður eigum við ekki myndir af húsinu eins og það leit út fyrir stórvirkið. Breytingin er alltént hreint með ólíkindum og með hækkandi sól var ytra byrði hússins fegrað og á fyrirsögnin svo sannarlega vel við, Hús tekur jákvæðum breytingum.

Glöggt er gests augað og þeir sem til Vopnafjarðar koma eru sammála um að bærinn litli er snyrtilegur í alla staði og nýtur auðvitað forréttinda þar sem umhverfið er sérlega fagurt. Nú hefur Hamrahlíð 26 bæst í hóp þeirra húsa sem vekja athygli hins glögga gests og ekki um annað en að óska Ingólfi og Helgu til hamingju með framtakið um leið og það gleður okkur hin jafnframt. Meðfylgjandi eru myndir er heimildarmaður tók á tilteknum dögum frá endurreisn Hamrahlíðar 26.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir