Vinnslumet á Vopnafirði

25.10 2010 - Mánudagur

Þegar frá því er greint á heimasíðu HB Granda, að sett hafi verið glæsilegt vinnslumet hjá fyrirtækinu á Vopnafirði, verður ekki hjá því komist að greina frá því á þessum vettvangi.

Tímamót sem þessi gefa sannarlega tilefni til umfjöllunar því ekki er sjálfgefið að vertíð gangi jafn vel og raun hefur verið á. Þvert á móti er ekki á vísan að róa en hin happadrjúga vertíð kemur öllum hlutaðeigandi vel og styrkir stoðir HB Granda á Vopnafirði. Framundan er frekari uppbygging á vegum þess, hrognaþurrkun og löndunarhús hafa verið samþykkt í embættiskerfinu en með þessum byggingum mun uppbyggingu fyrirtækisins á Vopnafirði vera lokið að sinni en í jafn kvikri starfsemi sér aldrei fyrir endann á verkefnum.

Svo sem áður greinir skyldi vikið að skrifum á heimasíðu HB Granda, www.hbgrandi.is, í tilefni hins merka vinnsluáfanga, þann 19. október sl. var skrifað:

Á þessu ári hafa alls verið fryst tæplega 17.000 tonn af uppsjávarafurðum í fiskiðjuveri HB Granda á Vopnafirði. Þetta er nýtt og glæsilegt vinnslumet en fyrra met er frá árinu 2004 en þá voru fryst 12.700 tonn af afurðum á Vopnafirði. Þá var tæpur helmingur afurðanna heilfryst loðna en nú eru það síldar- og makrílafurðir sem verið hafa uppistaðan í framleiðslunni.

Magnús Róbertsson, vinnslustjóri hjá HB Granda á Vopnafirði, segir að á loðnuvertíðinni hafi tekist að frysta um 1.000 tonn af loðnuafurðum en uppistaðan í þeirri vinnslu eru fryst loðnuhrogn. Veiðar á norsk-íslensku síldinni hófust síðan í byrjun júní og síðan þá hafa verið fryst tæplega 11.000 tonn af síld á Vopnafirði. Vinnsla á makríl til manneldis hefur einnig verið umtalsverð því búið er að frysta rúmlega 4.800 tonn af makríl á vertíðinni. Til samanburðar má nefna að í fyrra nam frysting á norsk-íslenskri síld á Vopnafirði aðeins tæplega 6.000 tonnum og nánast ekkert af makrílaflanum fór þá til frystingar.

Daginn eftir, þann 20. október, var skrifað:

Ingunn AK er nú á leið til Vopnafjarðar með um 900 tonn af íslenskri síld en sá afli fékkst á Breiðafirði skammt frá Stykkishólmi. Þetta er fyrsti aflinn úr þessum stofni á vertíðinni en skammt er síðan að sjávarútvegsráðherra heimilaði 15.000 tonna byrjunarkvóta.

,,Við vorum einir að veiðum og tókum tvö köst. Hið fyrra var rétt utan við Stykkishólm og það síðara inni á Breiðasundi sem er skammt þar fyrir innan,“ sagði Guðlaugur Jónsson, skipstjóri á Ingunni, er við náðum tali af honum nú í morgun. Að sögn Guðlaugs voru aðstæður góðar á veiðisvæðinu, lítill straumur og fékkst aflinn á um 20 faðma dýpi. Góðar lóðningar voru á svæðinu og vonandi gefur það fyrirheit um að nóg sé af síld í Breiðafirði þannig að hægt verði að auka við kvótann.

Mikið hefur verið rætt og ritað um sýkingu í íslenska sumargotssíldarstofninum en að sögn Guðlaugs var ekki að sjá á síldinni að hún væri sýkt.

,,Það sást ekkert á utan á síldinni og við sprettum upp 30 síldum af handahófi og þær voru allar í góðu lagi,“ segir Guðlaugur Jónsson.

Gefur ofangreint ákveðnar vonir um að Íslandssíldin sé heldur að braggast eftir að í henni fannst sú sýking sem plagað hefur stofninn undanfarin ár. Ef svo er útlit fyrir vinnslu áfram á Vopnafirði þó byrjunarkvótinn sé einungis 15 þúsund tonn.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir