Flokkun sorps í Safnstöð Vopnafjarðar

26.10 2010 - Þriðjudagur

Innan skamms mun sveitarfélagið kynna nýja meðhöndlun sorps á Vopnafirði en hingað til höfum við stundað nokkurs konar umhverfissóðaskap þó það hafi ekki verið meðvitaður tilgangur – og ekki annað í boði. Valdatímabili letingjans er lokið!

 

Framundan eru breyttar áherslur í breyttum heimi, sem er smám saman að vakna til vitundar um gildi þess að fara betur með því ef það er eitthvað sem er ógnar lífríki jarðar er það umgengni mannskepnunnar um hana. Íslendingar telja ekki hátt hlutfall en ber engu að síður að líta sér nær og því fleiri sem gera það eru meiri líkur til að landinu farnist vel. Umhverfissóðar heimsins hafa hingað til verið Bandaríkjamenn, hin 320 milljóna þjóð mengar meira en nokkur önnur þó svo virðist sem nýja iðnveldið í austri, Kína, muni brátt taka við hinum vafasama heiðri.

 

Innan skamms mun verða boðað til opinbers kynningarfundar en áður en til hans kemur þótti tilhlýðilegt að kynna málið aðeins á þessum vettvangi – komið er að því að við þurfum að fara að taka til hendi. Sbr. meðfylgjandi myndir eru lúgur komnar á aðra langhlið gamla áhaldahússins; þær munu merktar verða og hafandi upplýsingar um málið auðveldast málið nokkuð.

 

Og hvað er flokkað?

 

Grjót, jarðvegsúrgangur, steypa og múrbrot – hellur, rör og aðrar smærri framleiðslueiningar úr steinsteypu. Úrgang þennan skal losa á sérmerktu urðunarsvæði og áhersla lögð á að ekki fari önnur efni á svæðið en þau sem áðurnefnd eru.

 

Nytjahlutir – hvað á flokka? Allan húsbúnað, raftæki og annað sem fólk vill að fari í endurnotkun, t. a. m. borð, stólar, rúm, ísskápar, þvottavélar, bækur, diskar, bollar svo eitthvað sé tilgreint.

 

Moltugerð kynnt sérstaklega en benda má á kynningarsíðu fyrir heimamoltugerð og lausnir í þeim efnum, http://www.landvernd.is/myndir/safnahaugur_letingjans.pdf

 

Gler, postulín og flísar. Sérstök móttaka er innandyra í Safnstöðinni fyrir gler, postulín og flísar en helst falla til glerkrukkur undan sósum ýmiskonar, sultum og majónesi svo dæmi sé tekið. Glerbrot, flísar, keramikmunir og postulín – t. a. m. klósett, vaskar – falla undir þennan flokk. Það gerir á hinn bóginn ekki málmlok af glerkrukkum, sem fara í málmlúguna. Síðar nýtist úrgangurinn sem fyllingarefni við ýmiskonar framkvæmdir en gler og postulín eru jarðefni og nýtast með sama hætti og möl.

 

Spilliefni eru efni sem eru skaðleg umhverfi, mönnum og dýrum. Þau geta borist í gegnum vatn og andrúmsloft í fæðukeðjuna. Spilliefnum ber að skila til eyðingar. Hvað telst til spilliefna?

 

Ýmiskonar hreinsiefni, málning, lím, þynnir, húsgagnabón, leysiefni eins og terpentína, lyf, rafhlöður, kvikasilfur í hitamælum, lakk, stíflueyðir, skordýraeitur, úðabrúsar og viðhaldsefni fyrir bíla, s. s. frostlögur, olíuefni og rafgeymar. Flokkurinn er stór og fjölbreyttur. Í mörgum tilfellum áttar fólk sig ekki á hvaða efni það er að meðhöndla en ber að kynna sér. Spilliefni má ekki setja í ruslapokann, hella í vaskinn, salernið eða niðurfallið. Spilliefnum ber að skila í Safnstöð Vopnafjarðar á auglýstum opnunartíma og skal skilað í lokuðum umbúðum. Spilliefnin fara héðan til Sagaplast þar sem þau eru meðhöndluð á réttan hátt, komið til eyðingar eða endurvinnslu.

 

Rafmagnstæki/kælitæki. Tekið er við öllum rafeinda-, raf- og kælitækjum í Safnstöð á auglýstum opnunartíma hennar. Þessum flokki tilheyra m. a. kæliskápar, frystikistur, þvottavélar og önnur heimilistæki – ennfremur ljósakúplar, ljósaperur, tölvur o. fl. Gömul kælitæki innihalda kælimiðilinn freon, sem veldur eyðingu ósónlagsins. Sem betur fer er efnið því sem næst horfið úr kælitækjum. Sveitarfélögum ber lagaleg skylda að kælitækjum sé fargað á réttan hátt.

 

Hjólbarðar fara í Safnstöð og tekið við þeim á opnunartíma hennar. Hjólbarðar eru tættir hjá Furu – hjólbarðaverkstæði geta skilað hjólbörðum án endurgjalds.

 

Net, kaðlar og troll er skilað til stöðvarinnar en skera þarf allt járn, bobbinga og blý frá netum fyrir skil. Má reikna með að fæst heimili þurfi mikið að velta þessum þætti fyrir sér í flokkuninni.

 

Timbur fer einnig í safnstöðina og enginn önnur efni mega fara í þennan tiltekna flokk.

 

Kertaafgangar flokkast auk heldur, af öllum stærðum og gerðum – og skilist á auglýstum opnunartíma.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir