Matargatið að fara af stað

27.10 2010 - Miðvikudagur

Vopnfirska matargatið var stofnað í febrúar sl. Sett var saman stjórn sem ætlað var að undirbúa jarðveginn fyrir starfsemi félagsins, finna því vettvang og aðstöðu. Matargatið mynda áhugaaðilar um vopn-/austfirska matargerð og með aðstöðunni er þess vænst að hlutaðeigandi hafi tækifæri til að koma vöru sinni á framfæri. Hið forkveðna, sameinaðir stöndum vér ... á hér vel við.

Hugur er í fólki, hér að neðan fer fréttatilkynning frá stjórn Matargatsins, þar sem hvatt er til fundar annan fimmtudag og til námskeiðshalds daginn eftir með þátttöku kunnáttumanna á matvælasviðinu. Er það ánægjulegt að mál Matargatsins skuli vera á hreyfingu komið og vonandi verða þeir margir, vopnfirðingarnir, sem telja sig hafa eitthvað fram að færa og setji sig í samband við Matargatið.

Fréttatilkynningin:

VOPNFIRSKA MATARGATIÐ

Fræðslu- og upplýsingafundur.

 

Vopnfirska matargatið var stofnað í febrúar 2010 og er ætlað að undirbúa og finna aðstöðu fyrir smáframleiðslu matvæla. Hugmyndin er að aðilar sem áhuga hafa á að framleiða vöru geti fengið aðstöðu í sameiginlegu húsnæði þar sem öllum  heilbrigðiskröfum er mætt og leyfilegt verður  að selja vöruna á almennum markaði.

 

Mikil áhugi var sýndur við stofnun þessa félags og hafa stjórnarmenn lagt sig alla fram um að vinna að þessu markmiði. Til þess að þetta verkefni verði að veruleika þá þurfa áhugasamir að láta stjórnina vita ef þeir hafa áhuga á að framleiða eitthvað.

 

Stjórnin sótti  um fjármagn til þessa verkefnis og hefur nú fengið styrk frá Norðursprotum kr. 400.000  til gerðar viðskiptaáætlunar og láta útbúa  merki fyrir Vopnfirska matargatið. Eru þessi verkefni þegar í vinnslu.

 

Vaxtarsamningur Austurlands hefur einnig styrkt verkefnið um  kr. 1.000.000 til vöruþróunar.  Það þýðir að einstaklingar sem áhuga hafa á að framleiða eitthvað geta fengið þróunarstuðning .

Matís hefur staðfest framlag til að aðstoða við þróunarvinnu og Matarsmiðjan á Egilsstöðum býður fram aðstoð við slíkt hið sama.

 

Nú boðar Vopnfirska Matargatið til fræðslufundar þann 4. nóvember í Miklagarði.

5. nóvember verður boðið upp á stutt námskeið fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér smáframleiðslu matvæla.

 

Á fundinn munu koma, Guðjón Þorkelsson frá Matís og Þórarinn Egill Sveinsson frá Matarsmiðjunni á Egilsstöðum.

 

Vopnfirðingar góðir! Til þess að þetta verkefni geti orðið að veruleika verðum við að taka þátt.

Fundur og námskeið verða auglýst nánar síðar.

 

Stjórn Matargatsins.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir