Sundabúð lokað?

30.10 2010 - Laugardagur

Sveitarstjórnarmenn sátu fund með þingmönnum sl. þriðjudag þar sem hið alvarlega ástand í samfélaginu var til umræðu, vopnfirðingar reiðubúnir að taka sinn eðlilega skerf af niðurskurðinum. Tveimur dögum síðar, fimmtudaginn 28., voru mættir í Miklagarð fulltrúar HSA, Einar Rafn Haraldsson, framkvæmdastjóri, og Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri, til fundar við sveitarstjórn. Sá tónn sem endurómaði þar var allur annar en þingmanna, beinlínis var gefið í skyn að ekki væri annað í boði en lokun Sundabúðar.

Það þarf engan stjörnufræðing til að átta sig á hversu alvarleg tíðindin eru, Sundabúð er starfsstaður 23 einstaklinga í 15 stöðugildum - og þó fyrir hafi legið að til samdráttar kæmi hefði líklega enginn trúað að svo gróflega yrði gengið fram. Hér á eftir fer bréf oddvita sveitarfélagsins, Þórunnar Egilsdóttur, til þingmanna kjördæmisins en líta má á það sem upphaf varnarbaráttunnar og ekki lok hennar - framundan er tími samstöðu vopnfirðinga.

Bréf Þórunnar:

Vopnafirði 29.10.2010

Þingmenn NA- kjördæmis

Efni: Legudeild HSA Vopnafirði

 

Ágætu þingmenn

Eftir fund með ykkur sl. þriðjudag vorum við sveitarstjórnarmenn nokkuð rólegir vegna niðurskurðar hér á Vopnafirði. Svo virtist sem við tækjum á okkur sanngjarnan hluta af niðurskurðarkökunni og við skorumst ekki undan merkjum í þeim efnum.

Við líkt og allir landsmenn gerum okkur grein fyrir því að aðhalds sé þörf og erum tilbúin til að leggja okkar af mörkum til að rétta þjóðarskútuna af, en að ganga jafn freklega fram gagnvart samfélagi okkar og ætlunin virðist vera gengur út yfir allan þjófabálk.

Nú höfum við fengið þau skilaboð frá stjórn HSA að ekki sé annað í stöðunni en að loka Sundabúð, legudeild HSA á Vopnafirði þar sem 11 vistmenn búa. Ef að verður er ljóst að ætlunin er að flytja viðkomandi vistmenn hreppaflutningum um háa fjallvegi til annarra sveitarfélaga en þeir hafa eytt ævistarfi sínu í. Hér er um stóran vinnustað að ræða með 15 stöðugildum sem 23 einstaklingar sinna. Allir starfsmenn utan einn eru konur. Hlutfall menntaðra sjúkraliða er 68% eða það hæsta sem þekkist á landinu. Starfsstöðin er vel rekin og fagleg vinna til fyrirmyndar. En reyndin er sú að framlög til stofnunarinnar eru lægri en annars staðar þekkjast og því allir útreikningar engan veginn sanngjarnir.

Hvert rúm á Vopnafirði er reiknað í framlögum á kr. 5.267 þús., á meðan Neskaupstaður fær kr. 7.205 þús., Egilsstaðir kr. 7.702 þús. og Seyðisfjörður kr. 7.794 þús. Þetta þýðir að ef Sundabúð fengi sömu meðferð í útreikninum og t.d. stofnunin á Egilsstaðstöðum yrði framlagið hér 26.776 þús. kr. hærra. Það segir sig sjálft að þetta breytir öllum rekstrargrundvelli og þessu þarf að breyta.

Auk þess bendum við á að með því að taka sjúkrarúm út af deildinni skerðast framlög um kr. 12.593 þús. Rúm þetta hefur ekki einungis aukið á öryggi íbúanna heldur líka sparað ríkinu töluverðar fjárhæðir þar sem möguleiki er á að láta sjúklinga liggja þar sem annars þyrfti að senda með sjúkraflugi. Einnig hefur verið tekið á móti sjúklingum frá FSA eftir aðgerðir og þeir fengið aðhlynningu hér.

Grunnframlagið þarf að leiðrétta svo hægt sé að gera sanngjarnan samanburð á rekstri legurýma innan HSA.

Ef af þessum aðgerðum verður er þetta harkaleg aðför að samfélagi okkar sem engan veginn er ásættanleg. Allur samanburður við Vopnafjörð er erfiður þar sem hér eigum við um langan veg að fara til að sækja þjónustu utan héraðs og engan vegin tryggt að það sé alltaf hægt.

Hér með er óskað eftir viðræðum fulltrúa Vopnafjarðarhrepps og heilbrigðisyfirvalda um framtíðarsýn þessara mála.

Óskað er liðsinnis þingmanna í þessu máli.

Kveðja,

F.h. sveitarstjórnar Vopnafjarðarhepps,

 

Þórunn Egilsdóttir, oddviti

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir