Sú sorglega fregn viðvíkjandi hugmyndir stjórnenda HSA um lokun Sundabúðar kom sem þruma úr heiðskíru lofti fyrir vopnfirðinga sem aðra er á annað borð bera hlýjan hug til staðarins. Í gær var birt bréf oddvita til þingmanna kjördæmisins þar sem hugmyndum stjórnenda HSA var mótmælt auk þess sem gerð var grein fyrir þeirri mismunum sem ríkir með tilliti til framlaga á hvert rúm innan stofnunarinnar.
Nú er komið að Félagi eldri borgara á Vopnafirði og Kvenfélaginu Lindinni að mótmæla ráðahagnum. Eins og gjarnan er í litlu samfélagi koma sömu persónunar víða við; í tilfelli áðurnefndra félaga er formaðurinn hinn sami, Ágústa Þorkelsdóttir, og kvittar fyrir mótmælin f. h. félaganna. Greint var frá mótmælum félaganna í fréttum RUV í dag, er það vel að ríkisfjölmiðillinn greini frá þó innihaldið sé enginn gleðiboðskapur. Mótmælin fara hér á eftir.
Félag eldri borgara mótmælir lokun legudeildar á Vopnafirði.
Félag eldri borgara á Vopna- og Bakkafirði mótmælir lokun legudeildar Sundabúða á Vopnafirði. Endalaust virðist hægt að skerða möguleika eldri borgara til mannsæmandi lífs. Þó að skerðing tekna sé slæm eru þó þessar aðgerðir sem boðaðar eru af Heilbrigðisstofnu Austurlands sínu verri.
Við krefjumst þess að ákvörðun um lokun verði tafarlaust dregin til baka og gamla fólkið, sem býr á legudeildinni, ásamt starfsmönnum beðið afsökunar.
f. h. stjórnar Félags eldri borgara,
Ágústa Þorkelsdóttir, formaður.
Þessi mótmæli eru send til eftirtaldra aðila:
Heilbrigðisstofnunar Austurlands,
Ríkisútvarpsins
Morgunblaðsins
Austurgluggans
Þingmanna kjördæmisins.
Stjórn kvenfélagsins mótmælir lokun legudeildar á Vopnafirði.
Stjórn Kvenfélagsins Lindarinnar á Vopnafirði mótmælir lokun legudeildar Sundabúða á Vopnafirði.
Það var fyrir hvatningu kvenfélaganna sem Sundabúðir voru reistar til að skapa Vopnfirðingum öruggt ævikvöld.
Ákvörðun Heilbrigðisstofnunar Austurlands um að loka legudeildinni, senda gamla fólkið okkar burt og svipta okkar ágæta starfsfólk atvinnu, hlýtur að byggja á einhverju öðru en sparnaðarhugsun.
Vopnfirðingar munu ekki láta loka legudeildinni án baráttu. Lokun legudeildar er ekki eingöngu sársaukafull aðgerð gegn gamla fólkinu okkar og starfsfólki heldur sviptir þessi ákvörðun sveitarfélagið því öryggi sem við höfum öll haft af rekstri deildarinnar og því þjálfaða starfsfólki sem þar vinnur.
Kvenfélagið Lindin
f. h. stjórnar, Ágústa Þorkelsdóttir, formaður.