Oddviti nær fundi ráðherra

03.11 2010 - Miðvikudagur

Þórunn Egilsdóttir, oddviti Vopnafjarðarhrepps, er stödd í höfuðborginni þegar þetta er ritað þar sem hún freistast til að tala máli samfélags síns - og þá einkum Sundabúðar.

Ríkisstjórn Íslands hefur í mörgu að snúast þessar vikurnar og því er ekki hlaupið að því að ná fundi ráðherra enda fór það svo að heilbrigðisráðherra, Guðbjartur Hannesson, er vant við látinn en aðstoðarmaður hans, Anna Sigrún Baldursdóttir, tekur á móti oddvita. Í tilfellum er ekki verri kostur að ræða við aðstoðarmann en ráðherra sjálfan, sem á tíðum er upptekinn af mýmörgum málum samtímis og einbeitingin ekki sem skyldi.

Mikilvægt er að Þórunn skuli ná fundum ráðamanna og tala okkar máli en svo sem áður hefur verið skrifað er þörf á samstöðu sem aldrei fyrr. Ekki er allt sem sýnist þegar niðurskurður er annars vegar, Guðrún Bryndís Karlsdóttir verkfræðingur, færði skýr rök fyrir því í Návígi Þórhalls Gunnarssonar á RUV í gærkvöldi. Sendum við Þórunni bestu kveðjur um von um að fundurinn með Önnu Sigrúnu muni skila okkur árangri í baráttunni gegn hugmyndum stjórnenda HSA um að loka Sundabúð.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir