Í ljósi umræðunnar um vilja ráðamanna HSA um lokun Sundabúðar birtist hér bréf forstjóra til starfsmanna stofnunarinnar. Er um opinbert gagn að ræða þar eð bréfið er tekið orðrétt og óbreytt af heimasíðu HSA og er dagsett 18. október 2010.
Bréf forstjórans, Einars Rafns Haraldssonar.
Ágæta starfsfólk!
Í dag, kl. 09.00-12.00, mánudaginn 18. október, kom fimm manna sendinefnd Heilbrigðisráðuneytisins til fundar við framkvæmdastjórn HSA. Tilgangur fundarins var skoðanaskipti um áhrif fjárlagafrumvarpsins á starfsemi stofnunarinnar.
Aðstoðarmaður heilbrigðis- og félagsmálaráðherra stýrði fundinum. Í máli hennar kom fram að ráðuneytinu hefðu borist mikill fjöldi mótmæla frá Austurlandi vegna fjárveitinga til HSA og auglýsingaherferð í útvarpi vakið eftirtekt. Sendinefndin ætti það erindi að kynna sér hvernig stjórnendum HSA gengi að máta starfsemina inn í ramma fjárlaga og jafnframt að eiga viðræðu um fagleg málefni er varða þjónustuna.
Fulltrúar HSA benti á nokkur atriði í fjárlögunum sem augljóslega þarf að endurskoða til hækkunar vegna þess að um misreikning eða vöntun forsenda er að ræða. Þarna var m.a. rætt um niðurskurð á framlögum til heilsugæslunnar í Fjarðabyggð, vanreiknað framlag til sjúkraflutninga, framlag til ABG verkefnis og fyrirsjáanlegra vandræða við rekstur sjúkrasviðs og hjúkrunarsviðs. Fulltrúar ráðuneytisins kváðust mundu taka þau atriði til skoðunar og varð nokkur umræða um efnið. Einnig var rætt almennt um bráðaþjónustu í Neskaupstað, sjúkraflug og sjúkraflutninga, læknaskort í landinu og hvernig mætti mæta niðurskurði á sjúkrasviði með aukinni heimahjúkrun.
Engar ákvarðanir voru teknar á fundinum um aðgerðir stofnunarinnar né fyrirheit gefin um að fjárframlög til hennar verði aukin. Þeim tilmælum var komið til HSA að segja ekki upp fólki vegna niðurskurðarins nú strax og ekki fyrr en eftir næstu mánaðarmót, þ.e. október/nóvember. Samkvæmt framansögðu mun stofnunin búa sig undir að mæta niðurskurðarkröfu fjárlagafrumvarpsins, tæpum 500 mkr. Fram kom að vænta má annars fundar með ráðuneytinu um eða eftir næstu mánaðarmót.
Með góðum kveðjum
Einar Rafn