Hrognaþurrkun og löndunarhús

04.11 2010 - Fimmtudagur

Framkvæmdir á athafnasvæði HB Granda er ekki lokið, nýlega hófst bygging nýs hrognaþurrkunarhúss rétt fyrir framan síldaflökun, og á þekjunni voru menn í óða önn að máta fyrir löndunarhúsi sem þar á að standa.

Nýverið fékkst samþykkt fyrir byggingunum tveimur en eins og uppfyllingin er myndarleg og þekjan þar fyrir framan ekki síður eru byggingarnar frekar til rýmisins. Uppbygging HB Granda á sl. árum hefur vakið athygli á staðnum og er vopnfirðingum gleðiefni í hvívetna. Með þessum húsum uppkomnum má vænta að fyrirtækið hafi byggt nóg að sinni þó aldrei sé að vita hvað menn hyggjast gera næst.

Með fylgjandi eru nokkrar myndir teknar á vettvangi í morgun en ólíkt öðrum byggingum á hafnarsvæðinu hvílir löndunarhúsið á jörðu, á þekjunni nánar tilgreint, án sérstakra undirstaða. Auðveldar þetta mögulega tilfærslu hússins gerist þörf á að færa húsið.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir