Kynningarfundur Matís

05.11 2010 - Föstudagur

Matís og Matarsmiðjan á Egilsstöðum héldu kynningarfund í samvinnu við aðstandendur Matargatsins á Vopnafirði í Miklagarði í gærkvöldi. Mættir voru heiðursmennirnir Þórarinn Egill Sveinsson frá Matarsmiðjunni og Óli Þór Hilmarsson frá Matís.

Um Matís segir:

Matís er þekkingar og rannsóknafyrirtæki sem vinnur að þróun og nýsköpun i matvælaiðnaði, líftækni og matvælaöryggi. Matís veitir ráðgjöf og þjónustu til fyrirtækja í sjávarútvegi og landbúnaði, sem og íslenska ríkinu. Sem dæmi kemur Matís að þróun á nýjum vörum og ferlum fyrir fyrirtæki og hefur mikilvægu hlutverki að gegna varðandi gæði og öryggi matvæla.

Matarsmiðjan á Egilsstöðum er eins og aðrar slíkar sett upp í samvinnu við Matís og er sérstaklega sett upp til að styðja við frumkvöðla og fyrirtæki sem vilja hefja virðisaukandi smáframleiðslu matvæla úr íslensku hráefni.

Kynning þeirra Þórarins Egils og Óla Þórs var skilmerkilega og skemmtilega fram sett en í stuttu máli kom fram að um leið og vopnfirðingar eru hvattir til góðra verka er betra að flýta sér hægt, byrja smátt og forðast allan óþarfa rekstrarkostnað, s. s. rekstur á dýru húsnæði sem kallar á fastar greiðslur frá mánuði til mánaðar. Vopnfirðingum sem öðrum býðst sú aðstaða sem til staðar er í þeim matarsmiðjum sem þegar eru komnar af stað, s. s. Egilsstaðir, Höfn og Akureyri.

Uppi eru hugmyndir að nýta hluta gamla mjólkursamlagsins, sem með tiltölulega litlum tilkostnaði má koma í viðunandi form fyrir matvælaiðnað en meðan aðilar eru enn að þreifa sig áfram og óvíst um staðfastan vilja áhugaaðila er sú leið betri að leita þangað sem húsnæðið er, sbr. áðurnefnda staði, auk þess sem þar má þekkingu finna.

Í dag, föstudaginn 05., stendur vopnfirðingum til boða að sitja námskeið í Miklagarði þar sem þeir Óli Þór og Þórarinn Egill eru reiðubúnir að miðla af þekkingu sinni og er ekki um annað að gera en að hvetja fólk - sem á annað borð hefur áhuga fyrir matargerð í sinni víðustu mynd (og engin hugmynd svo vonlaus að ekki megi skoða hana svo vitnað sé til orða Þórarins Egils) - að mæta í Miklagarð því enn er tími þegar þetta er ritað 5 mínútum fyrir kl. níu!

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir