Mál málanna á Vopnafirði, framtíð Sundabúðar, er til umræðu áfram hér á heimasíðu sveitarfélagsins og verður svo uns niðurstaða liggur fyrir í málinu. Sú hugmynd stjórnenda HSA um lokun Sundabúðar, sem lausn á rekstrarvanda stofnunarinnar, hefur vakið ugg meðal íbúa og velunnara Vopnafjarðar um leið og samstaða hefur skapast um að verja hagsmuni íbúa heimilisins.
Hér fer að neðan bréf sveitarstjórnar, sem fer í öll hús sveitarfélagsins í dag, til íbúa þess en svo sem áður hefur verið ritað munu vopnfirðingar berjast til þrautar fyrir réttlátri lausn sinna mála. Bréfið er innlegg í þá baráttu. Áður hefur bréf það sem vitnað er til í þessu birst hér á heimasíðunni.
Vopnafirði 5. nóvember 2010
Ágætu Vopnfirðingar
Eins og öllum er kunnugt er nú hart að samfélagi okkar vegið með boðunum um mögulega lokun legudeildar Sundabúðar.
Sveitarstjórn Vopnafjarðar líkt og öllum Vopnfirðingum finnst þetta ekki koma til greina og getur engan veginn sætt sig við þessar áætlanir.
Við höfum skrifað alþingismönnum bréf sem sjá má á baksíðu þessa blaðs. Nánast allir þingmenn hafa brugðist við bréfinu og lýst yfir stuðningi við okkar málstað.
Einnig höfum við fundað með starfsmönnum Sundabúðar, sem gáfu okkur gagnlegar upplýsingar, sem við notum í baráttunni.
Oddviti fór til Reykjavíkur og hitti nokkra þingmenn og óhætt er að segja að stuðningur við okkur er þverpólitískur því það er öllum ljóst að við erum að verja grunnþjónustu á staðnum.
Oddviti og sveitarstjóri hafa fundað með fulltrúum Heilbrigðisráðuneytis. Niðurstaða þess fundar er sú að skoðaðar verða forsendur útreikninga við úthlutun fjármagns til legudeildarinnar og fulltrúar ráðuneytisins munu funda með forsvarsmönnum HSA.
Nú stendur hópur heimamanna fyrir undirskriftasöfnum varðandi málefnið og styðjum við það heils hugar.
Við hvetjum alla Vopnfirðinga til að standa saman um þetta mál.
Baráttukveðjur
Sveitarstjórn Vopnafjarðar